Thursday, January 17, 2008

Mömmu afmæli og Perú

Mamma mín á afmæli í dag.
Hrópum þrefallt húrra.
Hibb-hibb-húrrra-hibb-hibb-húrrra-hibb-hibb- HÚRRRRAAAA!
Til hamingju mamma mín.

Þá er komið að því. Á morgun byrja ég að fljúga og svo mun ég fljúga mjög mikið.

Ferðaplan

Föstudagurinn 18. janúar 2008
Keflavík - New York
Gisti eina nótt


Laugardagurinn 19. janúar 2008
New York - Costa Rica
Costa Rica - Lima
Hér verð ég sótt og keyrð á hótel í Lima. Gisti þar og verð svo sótt aftur og keyrð á flugvöllinn.

Sunnudagurinn 20. janúar 2008
Lima - Cusco

Þar mun svo fjölskylda mín bíða eftir mér og fara með mig heim.

Í gær komu fjölskyldu upplýsingarnar mínar. Fjölskyldan heitir Alzamora Silva.
Mamma - Graciela
Pabbi - Marco Antonio Alzamora
Börn - Jonatan (´88), Oscar Antonio (´91) og Marcela (´95)

Svo eru þau með dýr en þau eru víst alltaf úti.

Já. Svona er þetta. Skólinn byrjar svo á mánudeginum kl. 8:30.

Þetta er allt að gerast. Ég er orðin spennt.

3 comments:

Unknown said...

Sko-sagði þér að ég myndi vera dugleg:D

Þetta er allt svo ótrúlega spennandi og ég efast ekki um að þú eigir eftir að skemmta þér ææææðislega vel! Þetta er svo sannarlega lífsreynsla í lagi!

Vertu svo dugleg að blogga-eins og þú lofaðir fyrir 2 mínútum;)
Annars heyri ég í þér á morgun...
Knús og kram og endalausir kossar(væmið, vertu bara viðbúin því góða)
Luv sólin

Unknown said...

Ertu ad fara i spaenskuskola i Cusco? Vid Hildigunnur erum a leidinni fra Cusco yfir til Boliviu nuna i nott tannig ad vid munum ekki hitta tig en tad munadi nu ekki miklu! Skemmtu ter AEDISLEGA i Cusco, Peru er magnad land og tu munt potttett hitta einhverja Islendinga herna, nuna eru allavega 8 Islendingar i Cusco;)

Anonymous said...

Frábært að heyra að allt gengur vel. Mikið ævintýri framundan og gott að það byrjar svona vel. Bið að heilsa Graciellu og Marco og segðu þeim að vera góð við þig.

Núna er sunnudagur - skóli í fyrramálið! það verður spennandi. Góða nótt fína stelpa.