Tuesday, February 19, 2008

Mjog langt blogg

Tessi ruma vika er buin ad lida rosalega hratt. A manudaginn fyrir viku var fyrsti skoladagurinn minn tar sem eg var eftir hadegi i skolanum eda fra 2-6. Eg var ekki allt of satt med tad en tar sem allir vinir minir voru lika a tessum tima let eg mig nu hafa tad. Um morgunin hafdi eg tad bara rolegt. Tvodi fotin min og las uti i solinni. Kennarinn minn tessa vikuna var yndislegasti kennari sem eg hef haft hingad til. Hun heitir Libia og gerir rosalegar krofur til nemenda sinna en i leidinni er hun mjog skemmtileg. Mikill munur a henni og kennaranum i seinustu viku. Eg er rosalega satt.

A tridjudeginum vaknadi eg snemma tvi eg var buin ad akveda ad hitta nokkra kaffi og vid aetludum ad borda saman morgunmat og nota svo Boleto Toristico til ad fara a nokkur sofn. Vid forum ut ad borda a Jack´s cafe tar sem okkur langadi i eitthvad mikid og lekkert. Tar sem tetta er ameriskur stadur turfti eg audvitad ad fa mer ponnukokur med siropi og kaffi-milkshake. Tetta var svo gott en eg var hins vegar ad deyja eg var svo sodd eftir tetta. Vid roltum svo og nadum ad skoda 3 sofn tennan dag adur en vid turftum ad halda heim og borda hadegismat med fjolskyldunum okkar. Eg bordadi hadegismatinn tott eg trui tvi ekki ennda eftir allan tennan morgunmat og helt svo i skolan. Eftir skola var svo ferd med skolanum i leikhus ad sja tibiska dansa herna i Peru. Inngongumidi var einnig Boleto Turistico tannig ad audvitad forum vid oll ad sja tad. Tetta var mjog ahugavert og skemmtilegt en mjog svipad og dansarnir a carnivalinu.

A midvikudaginn heldu sofnin afram tar sem vid hofum bara 10 daga til ad klara Boleto Turistico. Nadum aftur ad skoda 3 sofn og erum tar med buin med sofnin en eg er lika komin med nog af teim i bili. Tennan dag var lika salsa en tar sem nuna eru 12-14 ara born i skolanum i eina viku og tau voru oll i salsa nennti eg ekki ad fara og for bara heim og hafdi tad notalegt med fjolskyldunni.

Valentinustardagurinn rann upp med ollu tvi sem tvi fylgir. Her er hann miklu staerri en heima. Oll por senda hvort odru astarbref med hjortum i og allt er vodalega vaemid. Eg turfti hins vegar ad vakna snemma tar sem eg var med fyrirlestur i skolanum tennan dag. Eg afladi mer upplysinga a netinu og for svo med tad ut og laerdi uti. I skolanum var svo stelpan sem er med mer i bekk ad fara a fotboltaleik tannig ad eg var ein med yndislega kennaranum minum i 3 tima. Tad var nu allt i lagi en eg kludradi algjorlega fyrirlestrinum. Geri bara betur seinna. Tegar eg kom heim var fullt af vinum Oscars heima tannig ad eg for bara ad spjalla vid ommuna og mommuna. Kvoldid endadi svo rolega. Eg horfdi a Gossip Girl i sjonvarpinu og taladi vid folk a skype. Hringdi lika i Nonnu tvi hun var ad fara til Santa Barbara daginn eftir. Eg held vid verdum a sama timabelti.

Jaeja. Fostudagur og manudur sidan eg lagdi af stad i tetta ferdalag mitt. Mikid er timinn fljotur ad lida. Morguninn var rolegur. Laerdi fyrir hid vikulega fostudagsprof, bordadi med fjolskyldunni og helt svo i skolann. I skolanum gerdist eitthvad og eg gat ekki talad spaensku. Vard mjog pirrud og var mjog angaegd tegar dagurinn var buinn. Eg for frekar fint klaedd i skolann tar sem eg og dosnku stelpurnar vorum bunar ad akveda ad nota afmaelisgjofina mina og borda cuy (naggris). Tipon var samt hins vegar bara med cuy i hadeginu tannig ad vid bordudum cuy i Cusco en tad var mjog fint. Eg fekk hann heilsteiktan med haus og klom allt. Madur turfti ad vera virkilega villimannslegur til ad geta bordad hann en hann bragdadist otrulegt en satt mjog vel. Vid drukkum svo hvitvin med matnum og vorum mjog elegant. Eftir matinn for eg adeins heim ad skila myndavelinni minni og for svo aftur ad hitta krakkana. Vid forum a nokkra stadi og fengum okkur nokkra drykki og tetta var otrulega gaman i alla stadi. Tokum risa dans session og skemmtum okkur konunglega. Strakarnir herna eru hins vegar med meiri mjadmir en stelpur heima. Tad er mjog fyndid og erfitt ad skella ekki upp ur tegar teir koma og reyna ad dansa vid mann. Tetta var otrulega gaman og eg kom heim kl 3 mjog satt med kvoldid.

Laugardagur og eg vaknadi kl 10 tvi folkid a nedri haedinni hafdi bodid mer i skirn og 2 ara afmaeli sonar sins tennan dag. Eg var bara i rolegheitum um morguninn en klaeddi mig svo frekar fint i tilefni dagsins. Athofnin var kl 4 og hun var mjog lik skirnum heima nema hvad bornin heldu oll a kertum og hvitur klutur var lagdur yfir hofdudid a bornum. Mjog ahugavert og gaman. Eftir athofnina var svo hent i loftid nammi og smapeningum eins og hrisgrjonum a nygift hjon herna heima. Mjog athyglisvert.

Eftir athofnina heldum vid i veisluna. Hun var haldin i sal tar sem allt var skreytt med blodrum. Tar kom i ljos ad tetta var ekki adeins veilsa fyrir tennan litla dreng heldur lika fyrir fraenda hans. Tvaer systur hofdu ta att strak a sama degi og tetta var veisla fyrir ta bada. Veislan var mjog fyndin. Tad kom trudur og lek vid krakkana i svona 4 tima. Hann var med tofrabrogd, bruduleikhus og margt fleira. Hann skemmti krokkum og fullordnum. Var mjog fyndinn. I veislunni var svo bodid upp a popp, gelly, koku og svo romm og kok. Ja. Romm og kok i 2 ara afmaeli og skirn.

Vid vorum tarna til 9 og fengum tvi lika kvoldmat en tad var krilladur kjuklingur a kolum. Otrulega godur en med honum var romm og kok ad drekka. Mjog fyndid og odruvisi en heima. Tegar vid komum heim var svo party a nedri haedinni. Eg for tangad og tar var i bodi bjor og meira romm og kok. Tar voru allir ad dansa salsa. Gamlir sem ungir. Allir gomlu kallarnir vildu dansa vid mig og audvitad gerdi eg tad. Tetta var otrulega gaman. Kynnist medal annars manni fra amazon svaedinu i Peru og hann vildi endilega reyna ad tala vid mig ensku og sagdi alltaf brother i stadinn fyrir syster o.s.frv. Skil nuna hvernig folki lidur tegar tad heyrir mig tala. Eg taladi hins vegar bara spaensku allt kvoldid. Tetta var otrulega skemmtileg upplifun.

A sunnudeginum vaknadi eg svo kl 8 mjog treytt og var ad fara i river rafting. Eg hitti stelpurnar sem foru med mer a Plaza de Armaz og tadan tokum vid rutu i 1,5 klst. Solin skein i heidi og lifid var ljuft. Tegar vid komum a stadinn var tar vodalega kruttleg og fin adstada. Souna, sturtur, buningsherbergi og fleira. Vid fengum blautbuninga og skelltum okkur i ta. Sidan klaeddum vid okkur i jakka og vesti og settum okkur hjalma og ta vorum vid tilbunar i slaginn. Guidinn sem var med okkur kenndi okkur i byrjun grunnatridin og hvad vid aettum ad gera tegar hann segdi tetta og hitt og sidan logdum vid i hann. Tetta var aedislegt i alla stadi. Stundum var mjog erfitt ad roa en tetta var svo mikid aderenalin kikk ad madur haetti bara ekki tott madur vaeri treyttur. Tegar vid vorum bunar i raftinginu tok a moti okkur heit souna og ljuffengur hadegismatur. Vel heppnad i alla stadi. Sidan logdum vid af stad heim og eg svaf alla leidina i rutunni. Tegar eg kom heim var Oscar bara heima tvi oll familian hafdi farid til Ucay ad hittta mommu pabbans tvi hun a afmaeli i naestu viku og tau komast ekki ta. Eg var ta bara i rolegaheitum med Oscari en kl 8 for eg ad hitta Camillu, Line, Ellen, Rikke og Zinia tvi Camilla og Line eru ad fara til Boliviu a morgun. Vid bordudum saman a pizza stad og skiptumst a e-mail adressum og fleira. Mjog kosi.

Jaeja. Teir sem eru ekki haettir ad lesa nuna fa stort klapp a bakid. Tetta er ordid mjog langt. I gaer var samt aftur a moti ny skolavika og nyr kennari. Eg fekk samt sama kennara og fyrstu vikuna sem mer likadi alveg agaetlega vid tannig ad eg var mjog satt. Eftir skola bordadi eg med familiunni og for svo ad leita ad hotelum handa mer og mommu tegar hun kemur hingad i mars. Eg er farin ad hlakka ekkert sma mikid til. Fullt af folki hittist svo a kaffihusi um kvoldid en eg var einfaldlega of treytt og sofnadi um 10 leitid fyrir framan sjonvarpid. Mamman vakti mig svo og sagdi mer ad fara i rummid. Tad er gott ad hafa einhvern sem hugsar um mann herna. Tau eru aedi.

2 Comments:

Anonymous said...

Hæ Hæ ekki séns að maður hætti að lesa, svo gaman að lesa um þessa ferð hjá þér. Bara að kasta á þig kveðju Helga klinka. ps. Ég las alla leið:)

Anonymous said...

thejournal compressed optima hourly logistical leukemia clarity exela ernakulam roamed synthelabo
lolikneri havaqatsu